Inngangur að gæðastjórnun

Inngangur að gæðstjórnun

Í námskeiðinu verður hugmyndafræði gæðastjórnunar kynnt og fjallað um hvernig fyrirtæki og skipulagsheildir geta nýtt aðferðir gæðastjórnunar til umbóta á starfseminni. Sagt er frá helstu straumum og stefnum um gæðastjórnun og tengslum þeirra.

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja kynnast helstu straumum og stefnum í gæðamálum og sæðastjórnun, tenslum þeirra og sögulegri þróun.  

Þátttökugjald er 125.000 kr 

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námskeiðið veitir 3 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Vesturlandi. Kennsla hefst 18. ágúst 2025 og stendur til 4.október 2025. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst á tímabilinu 4. - 7. september 2025 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október.  

Kennari

Kennarar námskeiðisins eru Eina Svansson og Sigurður Magnús Harðarson 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.