Félagaréttur
Í þessu námskeiði eru helstu hugtökum, skilgreiningum og réttarheimildum á sviði félagaréttar gerð skil. Gerð verður grein fyrir félagafrelsishugtaki stjórnarskrár. Farið er yfir félagaform í íslensku atvinnulífi og áhersla lögð á þau sem algengust teljast, sameignarfélög, hlutafélög og einkahlutafélög. Einnig verður farið yfir stofnun mismunandi félagaforma, fjárhagslegan grundvöll þeirra, stjórnkerfi, lagaumhverfi sem þau búa við auk ábyrgð félagsins, stjórnenda þess og félagsmanna.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast aukinn skilning á helstu hugtökum innan félagaréttar og mismunandi formum félaga í íslensku atvinnulífi.
Þátttökugjald er 100.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu. Kennsla hefst 24. ágúst og stendur til 10. október 2026. Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 17.-20. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 10. október 2026.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Erna Sigurðardóttir, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
.jpg?w=1208)