Evrópa og stórþróun á alþjóðavísu

Evrópa og stórþróun á alþjóðavísu

Þetta námskeið fjallar um stórþróun eða „drifkrafta sem sjáanlegir eru núna og munu að öllum líkindum hafa veruleg áhrif á framtíðina“ með tilliti til þeirra áskorana og tækifæra sem þau hafa í för með sér fyrir ríki, fyrirtæki og samfélög í Evrópu. Námsefnið fjallar um ferns konar stórþróun 1) Ný form félagslegra breytinga, 2) Loftslagshamfarirnar 3) tæknibylting gervigreindarinnar, 4) Uppbrot alþjóðlegra valdablokka.

Hver grundvallarbreyting í alþjóðlega umhverfinu felur í sér breytingar, áskoranir og tækifæri fyrir samfélög, fyrirtæki og ríki í mismunandi sviðum og atvinnugreinum. Þær áskoranir og tækifæri sem stafa af hverri stórþróun (e. megatrend) fyrir sig eru rædd sérstaklega í hverjum fyrirlestri námskeiðsins. Tila ð ná utan um stórþróun er nauðsynlegt að dreginn sé lærdómur út frá þverglegum fræðilegum ramma; allt vinnumarkaði, náttúruauðlindum, fjármálamarkaði, hrávörumarkaði, samfélagsstefnu, grænni umbyltingu, stafrænni þróun, alþjóðlegum viðskiptahagsmunum, skattaskilum og skattaskjólum, og myndun almannahagsmuna. Fyrirlestrarnir fjalla um og snerta hverja stórþróun samtímans fyrir sig bæði á heimsvísu, á evrópskum vettvangi í einkageiranum, á vettvangi hins opinbera og mannlegra samfélaga.
Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér eðli stórþróunar, sem fyriræbri stórra félagslegra áskorana

Þátttökugjald er 75.000 kr.

Gerð er krafa um grunnnámsgráðu

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistaranámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur. Kennsla hefst 20. apríl og stendur yfir til 5. júní. Námsmat fer fram dagana 4. - 5. júní 2026.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Cornel Ban

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.