Birgða- vöru- og rekstrarstjórnun
Markmið námskeiðs eru að nemendur öðlist góða þekkingu á því hvernig rekstrarstjórnun (e. operations management), innkaupastjórnun (e. procurement) og vörustjórnun (e. logistics). tengjast verslunarrekstri og hvernig nýtast til að undirbúa ákvarðanir, framkvæma þróunarverkefni og skipuleggja daglegan rekstur með sem hagkvæmasta hætti.
Nemendur þekki til aðferða upplýsingatækni við líkanagerð og ákvarðanatöku.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka færni sína í hugmyndafræði aðfangakeðjunnar og geta skipulagt birgðahald ásamt innkaupa- og pantanaferli.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda staðlotu á Hvanneyri/Borgarnesi. Kennsla 23. febrúar og stendur til 17. apríl 2026. Staðlota á Hvanneyri/Borgarnesi verður á tímabilinu 19. – 22. mars 2026. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 13. – 17 apríl 2026.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Helgi Valur Friðriksson stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
