Verðmat fyrirtækja
6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
75.000 kr
6 vikna námskeið
Húni Jóhannesson
Verðmat fyrirtækja
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum fræðilega og hagnýta þekkingu á aðferðum við verðmat fyrirtækja. Fjallað er um verðmat í tengslum við nýsköpun, kaup og sölu fyrirtækja (M&A) og öflun hlutafjár. Farið er vandlega yfir helstu verðmatslíkön og sérstaklega forsendur þeirra. Þá er skoðað hvernig nýttar eru næmni- og sviðsmyndagreiningar við verðmat, ásamt túlkun ársreikninga. Lögð er áhersla á haldgóða þekkinþgu á undirstöðum og forsendum verðmats í ljósi hagnýtingar þess við ýmis algeng viðfangsefni á borð við öflun fjármagns, verðlagningu hlutafjár og eðlilegt virði við kaup og sölu fyrirtækja. Sérstök áhersla er lögð á verðmatsaðferðir sem notaðar eru á markaði, sér í lagi sjóðstreymisverðmat.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið hentar þeim sem vilja auka þekkingu sína á aðferðum við verðmat fyrirtækja.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur og hefst kennsla 26. maí - 3. júní 2026.
Kennari
Kennari námskeiðisins er Húni Jóhannesson
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 26. maí 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
