Stjórnunareftirlitskerfi Fjarnám
Endurmenntun

Stjórnunareftirlitskerfi

6 ECTS einingar á grunnnámsstigi

Umsóknarfrestur er til 26. maí
75.000 kr.
26. maí - 3. júní
7 vikna námskeið
Húni Jóhannesson

Stjórnunareftirlitskerfi

Í þessu námskeiði er fjallað um stjórnunareftirlitskerfi (management control systems), sem eru mikilvægustu tæki og tól stjórnenda til að tryggja framfylgd markmiða fyrirtækis. Umræðan er ekki einskorðuð við lykilmælikvarða (KPIs) og árangursstjórnun (performance management), heldur er byggð upp nauðsynleg þekking svo  nemendur geti innleitt og hannað viðeigandi stjórnunareftirlitskerfi og tekur umfjöllunin meðal annars mið af því hvernig ytri og innri aðstæður fyrirtækis hafa áhrif, sem dæmi skipulag, stefna og markmið fyrirtækis.

Mikilvæg umræðuatriði eru árangursstjórnun, mannleg hegðun, ábyrgðastöðvar, balance scorecard, fjárhagslegir og ófjárhagslegir mælikvarðar, áhættukerfi, áætlanir og spár og hvatakerfi.

Sjá nánar kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið hentar vel millistjórnendum og öðrum í ábyrgðarstöðum innan fyrirtækja og stofnana þar sem áætlanir, árangursmælingar og -stjórnun skipa sess í daglegu starfi.

Þátttökugjald er 75.000 kr. 

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og kennsla hefst 26. maí - 3. júní 2026.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.  

Kennari

Kennari námskeiðsins er Húni Jóhannesson, stundakennari við Háskólann á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 26. maí.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.