Stjórnunarbókhald
6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
75.000 kr.
7 vikna námskeið
Árni Sverrir Hafsteinsson
Stjórnunarbókhald
Stjórnunarbókhald er samansafn tölulegra aðferða sem nýttar eru við ákvörðunartöku innan fyrirtækja. Í námskeiðinu er farið yfir helstu aðferðir stjórnunarbókhalds. Ítarlega er fjallað um ólíka eiginleika kostnaðar, t.d. sokkinn/óafturkræfan, beinan og óbeinan, fastan og breytilegan. Farið er yfir núllpunktsgreiningar, með og án hagnaðartakmörkum, rekstrargírun og sveigða áætlanagerð. Magnákvörðun framleiðslu þegar framleiðsluþættir eru takmarkaðir er skoðuð. Hlutföllun kostnaðar er stór hluti námskeiðsins en farið er yfir nokkrar útfærslur fullkostnaðar-aðferðarinnar, meðal annars verkgrundaða kostnaðaraðferð (Activity-based costing, ABC).
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast heildstæðan skilning á því hvaða kostnaðarþætti á að nota við mat á kostnaði verkefna, deilda og eininga innan fyrirtækja.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda staðlotu á Hvanneyri/Borgarnesi. Kennsla 23. febrúar og stendur til 17. apríl 2026. Staðlota á Hvanneyri/Borgarnesi verður á tímabilinu 19. – 22. mars 2026. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 13. – 17 apríl 2026.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Árni Sverrir Hafsteinsson stundakennari við Háskólann á Bifröst
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
