Stafræn markaðsstjórnun
6 ECTS einingar á meistarastigi
75.000 kr.
7 vikna námskeið
Atli Björgvinsson og Vera Dögg Höskuldsdóttir.
Stafræn markaðsstjórnun
Í námskeiðinu Stafræn markaðsstjórnun verður farið vel í einstaka þætti í hinum stafræna heimi þar sem hagnýting stafrænna tóla og tækja verður í forgrunni í stafrænni markaðssetningu. Farið verður yfir helstu áskoranir og tækifæri í stafrænni markaðssetningu með raundæmum og helstu aðferðir kynntar. Einnig verður lögð áhersla á nýjustu strauma og stefnur í stafrænni markaðsstjórnun. Kennarar í námskeiðinu verða sérfræðingar á sínu sviði og eru stöðugt að vinna með helstu aðferðir í stafrænni markaðsstjórnun.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efla færni sína í stafrænni markaðsstjórnun.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur. Kennsla hefst 20. apríl 2026 og stendur yfir til 11. júní 2026. Námsmat fer fram dagana 9. - 11. júní.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Atli Björgvinsson og Vera Dögg Höskuldsdóttir.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 20. apríl.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
