Stafræn markaðssetning
6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
75.000 kr.
7 vikna námskeið
Bárður Örn Gunnarsson og Vera Dögg Höskuldsdóttir
Stafræn markaðssetning
Farið er í grunnhugtök tengd markaðssetningu á Internetinu s.s. stefnumótun (strategy) og árangursríka uppbyggingu vefsíðna og vefstjórnun (implementation and practice). Farið er vandlega í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru boði á þessum vettvangi s.s. markaðssetning á leitarvélum (SEO), vefborðar, rafræn fréttabréf, markaðssetning á samfélagsmiðlum og PPC herferðir á Google og Facebook ásamt því hvernig á að meta og mæla árangur í markaðsstarfi á netinu.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka færni sína í stafrænni markaðssetningu
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu. Kennsla hefst 18. ágúst og stendur til 27. september 2025. Um fjögurra stunda staðlota í verður á tímabilinu 4.-7. september en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október 2025.
Kennarar
Kennarar námskeiðsins er Bárður Örn Gunnarsson og Vera Dögg Höskuldsdóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is