Öryggi, orka og stjórnarhættir á norðurslóðum
Endurmenntun

Öryggi, orka og stjórnarhættir á norðurslóðum

6 ECTS einingar á grunnámsstigi. Kennt á ensku.

Umsóknarfrestur er til 19. október 2026
100.000 kr.
19. október – 8. desember
7 vikna námskeið
Erin Allison Sawyer

Öryggi, orka og stjórnarhættir á norðurslóðum

Námskeiðið fjallar um öryggi, stjórnsýslu og valdakerfi á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi með sérstakri áherslu á orkuskipti, loftslagsbreytingar og vaxandi geopólitíska þýðingu svæðisins. Rýnt er í hvernig hlýnun jarðar, ný siglingaleið, aukin auðlindanýting og hernaðarleg nærvera umbreyta valdahlutföllum og samstarfi á norðurslóðum.

Námskeiðið er hluti af Jean Monnet Chair verkefninu ISARCEUR Links to an external site. við Háskólann á Bifröst, sem er þriggja ára verkefni styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér öryggi, stjórnsýslu og valdakerfi á norðurslóðum. Námskeið er kennt á ensku. 

Þátttökugjald er 100.000 kr.

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu á Vesturlandi. Kennsla hefst 19. október og stendur yfir til 8. desember 2026. Staðlota verður haldin dagana 13. -15. nóvember og koma frekari upplýsingar síðar.   

Kennari

Kennari námskeiðsins er Erin Allison Sawyer. 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 19. október 2026. 

Vinsamlegast látið fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.