Markaðssamskipti og auglýsingastjórnun
6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
100.000 kr
7 vikna námskeið
Ragnar Már Vilhjálmsson
Markaðssamskipti og auglýsingastjórnun
Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur fái skilning á hvernig helstu hugtök markaðsfræðinnar eru notuð í samskiptum markaðsfólks, þ.e. markaðstjóra, markaðsdeilda, auglýsinga- og birtingastofa. Farið er yfir grunnhugsun í markaðsfærslu, hvernig markmið fyrirtækja hverju sinni eru skilgreind, nauðsynlegar rannsóknir gerðar, hvernig skilaboð markaðsefnis er þróað og unnið og hvernig birtingar markaðsefnis eru ákveðnar út frá markmiðum og markhópum hverju sinni.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast aukna færni í markaðssamskiptum og auglýsingastjórnun
Þátttökugjald er 100.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk þess sem ein vika er til viðbótar fyrir námsmat. Kennsla hefst 19. október og stendur til 8.desember 2026. Staðlota er helgina 13. - 15. nóvember. Námsmatsvika fer fram vikuna 30. nóvember - 8. desember.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Ragnar Már Vilhjálmsson, lektor við Háskólann á Bifröst
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 19. október 2026.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
