Örnám
Endurmenntun | Örnám

Lög og sjálfbærni

Námið er samtals 24 ECTS einingar og samanstendur af fjórum námskeiðum sem eru 6 ECTS einingar hvert.

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2025
300.000 kr
Skólaárið 2025-2026
Fjögur sjö vikna námskeið
Petra Baumruk, Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, Ingi B. Poulsen og Hanna Björg Konráðsdóttir

Lög og sjálfbærni

Löggjöf skapar sterka hvata sem geta haft bæði jákvæð og neikvæð samfélagsleg áhrif. Setning nýrra laga er meðal þeirra aðferða sem nú er beitt við að ná tökum á loftslagsvanda af manna völdum og annarri alvarlegri þróun á lífríki jarðar. Ný löggjöf getur þó stundum haft ófyrirséð hliðaráhrif og eldri löggjöf getur skapað hindranir sem koma í veg fyrir hraðar breytingar.

Í þessari námslínu er farið yfir mest aðkallandi sjálfbærnivandamál samtímans og hvernig löggjöf Evrópusambandsins sem nú er verið að innleiða hér á landi er ætlað að takast á við þau. 

Námslínan hentar fyrir þau sem starfa í íslensku atvinnulífi, hvort heldur sem er hjá fyrirtækjum, stofnunum eða í þriðja geiranum og hafa áhuga á að auka skilning sinn á íslensku lagaumhverfi og öðlast hagnýta þekkingu á sviði sjálfbærni.

Fjöldi ECTS eininga og dreifing vinnuálags
Námið er samtals 24 ECTS einingar og samanstendur af fjórum námskeiðum sem eru 6 ECTS einingar hvert. Hvert námskeið er kennt í sjö vikna lotu í fjarnámi. Fjórar lotur sem dreifast á haust- og vorönn.

Fjöldi ECTS eininga og dreifing vinnuálags

Námið er samtals 24 ECTS einingar og samanstendur af fjórum námskeiðum sem eru 6 ECTS einingar hvert. Hvert námskeið er kennt í sjö vikna lotu í fjarnámi. Fjórar lotur sem dreifast á haust- og vorönn.

Inngangur að lögfræði 1 – Lota 1 haustönn
Sjálfbærnistjórnun – Lota 2 á haustönn
Loftslagsréttur – Lota 1 vorönn
Orkumálaréttur – Lota 2 vorönn

Fagstjóri námsins er Elín H.  Jónsdóttir

Verð

Verð: 300.000 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun hja bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.