Kostnaðarbókhald Fjarnám
Endurmenntun

Kostnaðar- og stjórnunarbókhald

6 ECTS einingar á grunnnámsstigi

Umsóknarfrestur er til 19. október
100.000 kr.
19. október – 8. desember
7 vikna námskeið
Húni Jóhannesson

Kostnaðar- og stjórnunarbókhald

Kostnaður er einn mikilvægasti hluti fyrirtækjareksturs, en veitt er yfirgripsmikil kynning á grundvallarhugtökum og hagnýtum hliðum kostnaðarbókhalds. Fjallað er um samband kostnaðar og magns ásamt því að kynna mismunandi kostnaðaraðferðir og -kerfum, svo sem verkkostnað, ferliskostnað og verkgrundaða kostnaðaraðferð (activity-based costing/ABC). Fjárhagsáætlanir skipa stóran sess í mörgum fyrirtækjum og því farið vel yfir þær og mikilvæg atriði, svo sem rekstrarmarkmið, ábyrgðarstöðvar, hvata, hvatningu, kostnað og frávikagreininar. Þá eru mismunandi útfærslur á áætlunum eins og sveigaðar fjárhagsáætlanir (flexible budgets) til skoðunar. Einnig er fjallað um ákvarðanatöku ásamt viðeigandi upplýsingum fyrir þær, arðemisgreiningu viðskiptavina og verðákvarðanir.  

Sjá nánar kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja bæta þekkingu sína og getu til að reikna framleiðslu- og/eða þjónustukostnað hjá fyrirtæki eða stofnun.

Þátttökugjald er kr. 100.000

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk þess sem ein vika er til viðbótar fyrir námsmat. Kennsla hefst 19. október og stendur til 8. desember 2026. Námsmat fer fram dagana 30. nóvember – 8. desember.  Staðlota er á tímabilinu 13.-15. nóvember.

Kennarar

Kennari námskeiðsins er Húni Jóhannesson.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 19. október 2026. 

Vinsamlegast látið fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.