Hagnýt vinnumarkaðshagfræði: Vinnumarkaðurinn og lykilhagtölur Fjarnám
Endurmenntun

Hagnýt vinnumarkaðshagfræði: Vinnumarkaðurinn og lykilhagtölur

6 ECTS einingar á meistarastigi

Umsóknarfrestur er til 20. apríl
75.000 kr.
20. apríl - 11. júní
7 vikna námskeið
Arndís Vilhjálmsdóttir

Hagnýt vinnumarkaðshagfræði: Vinnumarkaðurinn og lykilhagtölur

Námskeiðið er hannað fyrir nemendur í forystu og stjórnun. Fjallað er um helstu grunnatriði, hugtök og kenningar í vinnumarkaðshagfræði í hnattvæddum heimi og beitingu grunntækja hagfræðinnar á vinnumarkaði. Farið er yfir helstu vinnumarkaðsstofnanir, hagaðila, sáttmála, samninga og reglugerðir sem móta íslenskan vinnumarkað og hvernig það hefur áhrif á stjórnun í fyrirtækjum. Farið er í hlutverk og viðfangsefni ólíkra hagaðila á vinnumarkaði og lögð áhersla á umfjöllun um íslenskan vinnumarkað. Auk þess er umfjöllunin tengd við áhrif alþjóðavæðingar og fjölþjóðlegra fyrirtækja og samtaka á vinnumarkaði.  Fjallað verður um og unnið sérstaklega með ýmsar lykilhagtölur Hagstofunnar og annarra alþjóðlegra stofnana, er lúta að vinnumarkaðinum. Verkfæri hagfræðinnar eru notuð til að greina ákvarðanir vinnuveitenda og starfsmanna og stofnanaþætti er hafa mótandi áhrif á þær ákvarðanir, og þ.m.t. ákvarðanir stéttarfélaga, samtaka atvinnurekenda, stjórnvalda og einstakra fyrirtækja.

Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið hentar til dæmis stjórnendum og mannauðsstjórum í fyrirtækjum og stofnunum en einnig áhugafólki um vinnumarkað.

Þátttökugjald er 75.000 kr

Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur. Kennsla hefst 20. apríl 2026 og stendur til 11. júní 2026. Námsmat fer fram dagana 9. - 11. júní 2026.

Þáttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í meistaranámi Háskólans á Bifröst. Þáttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Arndís Vilhjálmsdóttir

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 20. apríl.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.