Græn fjármál Fjarnám
Endurmenntun

Græn fjármál

6 ECTS einingar á meistarastigi

Umsóknarfrestur til 20. apríl
75.000 kr
20. apríl - 11. júní
6 vikna námskeið
Cornel Ban

Græn fjármál

Þetta námskeið fjallar um stórþróun eða „drifkrafta sem sjáanlegir eru núna og munu að öllum líkindum hafa veruleg áhrif á framtíðina“ með tilliti til þeirra áskorana og tækifæra sem þau hafa í för með sér fyrir ríki, fyrirtæki og samfélög í Evrópu. Námsefnið fjallar um ferns konar stórþróun 1) Ný form félagslegra breytinga, 2) Loftslagshamfarirnar 3) tæknibylting gervigreindarinnar, 4) Uppbrot alþjóðlegra valdablokka.

Hver grundvallarbreyting í alþjóðlega umhverfinu felur í sér breytingar, áskoranir og tækifæri fyrir samfélög, fyrirtæki og ríki í mismunandi sviðum og atvinnugreinum. Þær áskoranir og tækifæri sem stafa af hverri stórþróun (e. megatrend) fyrir sig eru rædd sérstaklega í hverjum fyrirlestri námskeiðsins. Tila ð ná utan um stórþróun er nauðsynlegt að dreginn sé lærdómur út frá þverglegum fræðilegum ramma; allt vinnumarkaði, náttúruauðlindum, fjármálamarkaði, hrávörumarkaði, samfélagsstefnu, grænni umbyltingu, stafrænni þróun, alþjóðlegum viðskiptahagsmunum, skattaskilum og skattaskjólum, og myndun almannahagsmuna. Fyrirlestrarnir fjalla um og snerta hverja stórþróun samtímans fyrir sig bæði á heimsvísu, á evrópskum vettvangi í einkageiranum, á vettvangi hins opinbera og mannlegra samfélaga.
Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér helstu atriði í grænni fjármögnunarleið og öðlast færni í að meta um stefnu og áskoranir fyrirtækja varðandi fjármögnun grænna umskipta.

Gerð er krafa um grunnnámsgráðu

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistaranámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur. Kennsla hefst 20. apríl og stendur yfir til 11. júní. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Cornel Ban

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.