Stærðfræði - undirbúningsnámskeið Námskeið
Endurmenntun

Fornámskeiðið í stærðfræði fyrir nemendur í viðskiptadeild

Undirbúningur í stærðfræði fyrir þá sem eru að hefja háskólanám

Umsóknarfrestur er til 3. ágúst
19.900
4.- 18. ágúst
Tveggja vikna námskeið
Bjarni Heiðar Halldórsson

Fornámskeiðið í stærðfræði fyrir nemendur í viðskiptadeild

Námskeiðið er sérlega hentugur undirbúningur fyrir þá sem hafa tekið sér hlé frá námi og þurfa að skerpa á þekkingu sinni, sem og þá sem eru að hefja háskólanám í fyrsta sinn.

Fornámskeiðið í stærðfræði er sniðið að þörfum nemenda sem eru að hefja grunnnám við Háskólann á Bifröst. Rifjaður verður upp grunnur í stærðfræði úr menntaskóla og byggt á honum til að undirbúa nemendur fyrir helstu reikningsaðgerðir sem þeir mega vænta að þurfa takast á við í náminu.

Byrjað verður á snöggri yfirferð yfir helstu reglur og aðferðir sem stærðfræðin byggir á, áður en haldið verður í viðskipta- og hagfræðitengd viðfangsefni í takt við áherslur námsins. Þá verður farið yfir uppsetningu stærðfræði verkefna í Microsoft Word og notkun forritsins GeoGebra við úrlausn verkefna.

Námskeiðið fer alfarið fram í formi rafrænna fyrirlestra. Tvö valkvæð verkefni verða lögð fyrir á námskeiðinu og munu nemendur hljóta endurgjöf á þau sem ætti að styrkja stöðu þeirra í upphafi annar. Þá bjóðast nemendum enn frekar tveir fyrirspurnartímar á Microsoft Teams þar sem þeim gefst kostur að leita aðstoðar kennara með hvers konar vandamál.

Sjá kennsluskrá hér. 

Kennsla hefst 4. ágúst og stendur yfir í tvær vikur. 
Verð: 19.900 kr. 

Umsóknarfrestur er til 3. ágúst

Kennari

Kennari námskeiðsins er Bjarni Heiðar Halldórsson, stundakennari við háskólann á Bifröst

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.