Fjölþáttaógnir: Varnir, viðbrögð og áhrif Fjarnám
Endurmenntun

Fjölþáttaógnir: Varnir, viðbrögð og áhrif

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi

Umsóknarfrestur er til 19. október
100.000 kr.
19. október - 8. desember
7 vikna námskeið
Bjarni Bragi Kjartansson

Fjölþáttaógnir: Varnir, viðbrögð og áhrif

Námskeiðinu er ætlað að kynna þátttakendum fjölþáttaógnir (e. hybrid threats) og fjölþáttahernað (e. hybrid warfare) sem verða sífellt fyrirferðarmeiri í umræðum um öryggismál. Fjölþáttahernaður hefur verið stundaður af ríkjum frá örófi alda, til að grafa undan andstæðingum, m.a. með upplýsingafölsun og undirróðri. Nútíma tækni og flókið samfélag hafa hins vegar gjörbreytt aðstæðum og fleiri gerendur en þjóðríki geta nú valdið slíkum ógnum og stundað slíkan hernað með fjölbreyttari hætti með minni kostnaði og áhættu. Áfallastjórnendur þurfa því að skilja þessar ógnir og undirbúa viðbrögð vegna þeirra – hvort sem þeir starfa innan skipulagsheilda á innanlands- eða alþjóðamarkaði, innan opinberra stofnanna, alþjóðastofnanna eða í samskiptum við þær. 

Á námskeiðinu verður kynnt hvernig fjölþáttahernaði hefur verið beitt í sögunni. Jafnframt gerð grein fyrir átakalínum í nútímanum, þeim jarðvegi sem fjölþáttaógnir spretta úr og það sett í samhengi við viðeigandi kenningar í alþjóðasamskiptum. Helstu gerendur verða kynntir, hvaða aðferðum er helst beitt og hverjar afleiðingarnar geta verið, m.a. að lýðræði er alvarlega ógnað. Einnig verður fjallað um viðbrögð og úrræði við fjölþáttaógnum. m.a. um viðbúnað NATO og Evrópusambandsins og þeim stofnanalegu vandkvæðum sem geta verið á. Ennfremur rætt um beitingu áróðurs og upplýngaóreiðu, aðgerðum sem gjarnan ætlað að grafa undan samheldni og stuðla að klofningi – sem getur torveldað rétt viðbrögð enn frekar.  

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið hentar stjórnendum og þeim sem vilja öðlast þekkingu á fjölþáttaógnum

Þátttökugjald er 100.000 kr. 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk einnar námsmatsviku. Kennsla hefst 19. október og stendur til 29. nóvember 2026. Námsmat fer fram dagana 30. nóvember - 8. desember.  

Kennari

Kennri námskeiðsins er Bjarni Bragi Kjartansson

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 19. október. 

Upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.