Alþjóðleg markaðsfræði Fjarnám
Endurmenntun

Alþjóðleg markaðsfræði

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi

Umsóknarfrestur er til 19. október
100.000 kr.
19. október - 8. desember
7 vikna námskeið
Selma Kadic-Maglajlic

Alþjóðleg markaðsfræði

Í námskeiðinu er fjallað um alþjóðlega markaðssetningu í kenningalegu og hagnýtu samhengi.

Nemendur læra að hugsa um markaðsmál í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og leggja sig fram um að hugsa út fyrir það umhverfi sem þeir gjörþekkja. Stuðst er við dæmi sem varpa ljósi á kenningar og gefa nemendum hugmynd um áskoranir alþjóðlegrar markaðsstjórnunar.  

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið hentar þeim sem vilja læra um markaðsmál í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi

Þátttökugjald er 100.000 kr. 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk einnar námsmatsviku. Kennsla hefst 19. október og stendur til 8. desember 2026. Staðlota fer fram á tímabilinu 13.-15. nóvember 2026. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Selma Kadic-Maglajlic. 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 19. október. 

Upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.