Hagnýt samningatækni

Hagnýt samningatækni

Á námskeiðinu er fjallað á aðgengilegan hátt um helstu aðferðir samningatækni. Áherslan á námskeiðinu er sú að nemendur fái annars vegar mikla hagnýta kennslu sem byggir á raunhæfum og praktískum dæmum og hins vegar að umfjöllunin miði öll að því að nemendur geti beitt aðferðum samningatækni með því skýra markmiði að báðir samningsaðilar vilji og geti efnt samninginn.

Sjá kennsluskrá hér. 

Í námskeiðinu kynnast nemendur ýmsum hagnýtum aðferðum sem nýtast í gæðastjórnun og stjórnun almennt. Unnin verða verkefni þar sem þátttakendur velja sér verkfæri til að kynna sér nánar og æfa sig í að beita þeim. Einnig verður sagt frá nýjustu þróun í staðlamálum og vottunum. Kynntir verða nýir vinsælir staðlar, t.d. í umhverfismálum og ferðaþjónustu, og þátttakendur kynna sér staðla og vottanir sem tengjast þeirra atvinnugrein.

Sjá kennsluskrá hér.

Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta hagnýtt þá þekkingu í samningatækni við raunverulegar aðstæður. 

Þátttökugjald er 125.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 3 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu á Vesturlandi. Kennsla hefst 13. október og stendur yfir til 1. desember 2025. Staðlota verður haldin dagana 30. október - 2. nóvember og koma frekari upplýsingar síðar. 

Kennari

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 8. október 2025. 

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.