Gerð gæðastjórnunarkerfis
Í námskeiðinu verður fjallað um gerð og uppbyggingu gæðastjórnunarkerfa. Þátttakendur fá þjálfun í greiningu ferla og við að útbúa verklagsreglur, vinnulýsingar og önnur gæðaskjöl. Einnig fá þeir þjálfun í að gera beinagrind / efnisyfirlit fyrir gæðastjórnunarkerfi og fjallað verður um hvernig móta má gæðastjórnunarkerfi með hliðsjón af stöðlum svo kröfur staðlanna séu uppfylltar. Fjallað verður um vottunarferli gæðastjórnunarkerfis.
Námskeiðið er partur af örnámslínunni Gæðastjórnun.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta útbúið beinagrind fyrir gæðastjórnunarkerfi og verklagsreglur fyrir fyrirtæki.
Þátttökugjald er 125.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 3 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda staðlotu á Hvanneyri/Borgarnesi. Kennsla hefst 5. janúar og stendur til 20. febrúar 2026. Staðlota á Hvanneyri/Borgarnesi verður á tímabilinu 22. – 25. janúar. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 16. – 20. Febrúar 2026.
Kennari
Kennarar námskeiðisins eru Einar Svansson, prófessor og Sigurður Magnús Harðarson stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2026
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.
