Fullnusturéttarfar

Fullnusturéttarfar

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur fullnusturéttarfars. Meðal þess sem fjallað er um er aðför, kyrrsetning og lögbann, nauðungarsala. Sérstaklega er farið yfir skiptarétt þ.m.t. skipti þrotabúa, dánarbúa og slit félaga með sérstakri áherslu á fjármálafyrirtæki.

Sjá kennsluskrá.

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta nýtt þekkingu úr námskeiðinu við lögfræðistörf á réttarsviðinu.

Þátttökugjald er 75.000 kr 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi.

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina fjögurra stunda staðlotu á Hvanneyri/Borgarnesi. Kennsla hefst 5. janúar og stendur til 20. febrúar 2026. Staðlota á Hvanneyri/Borgarnesi verður á tímabilinu 29. janúar – 1. febrúar. Nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 16. – 20. Febrúar 2026.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.     

Kennari

Kennari námskeiðsins er Ari Karlson, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 2. janúar 2026.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.