Almennur félagaréttur
Í námskeiðinu eru helstu hugtökum, skilgreiningum og réttarheimildum á sviði félagaréttar gerð skil. Gerð er grein fyrir hugtaki stjórnarskrár um félagafrelsi. Farið er yfir mismunandi félagaform, flokkun þeirra og atriði sem hafa ber í huga varðandi val á félagaformi.
Einnig er farið yfir stofnun mismunandi félagaforma, fjárhagslegan grundvöll ólíkra félagaforma, stjórnkerfi, lagaumhverfi sem þau búa við auk ábyrgðar félagsins, stjórnenda þess og félagsmanna. Fjallað er um réttarreglur um stofnun, samruna og slit hlutafélaga, hluti, hlutabréf og viðskiptahömlur með hlutabréf og meðferð hlutafjár. Fjallað er um stjórnkerfi hlutafélaga, ábyrgð stjórnenda og minnihlutavernd. Farið er yfir áhrif evópskra tilskipana á íslenskan félagarétt.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast skilning á félagarétti
Þátttökugjald er 219.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 8. janúar 2024 og stendur til 16. febrúar. Rafræn vinnustofa verður haldin á tímabilinu 25.-28. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 19.-23. febrúar 2024.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í meistaranámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Elín Jónsdóttir
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2023.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.