Samningar og sáttamiðlun
Námið er samtals 12 ECTS einingar og samanstendur af fjórum námskeiðum sem eru 3 ECTS einingar hvert.
490.000 kr
Fjögur sjö vikna námskeið
Unnar Steinn Bjarndal Björnsson, Aðalsteinn Leifsson og Ari Karlsson.
Samningar og sáttamiðlun
Markmið örnámsins Samningar og sáttamiðlun er að skapa tækifæri fyrir fólk til að efla færni sína við gerð samninga og túlkun þeirra, svo minnka megi líkurnar á því að ágreiningur skapist vegna þeirra. Þá er í náminu lögð áhersla á árangursríka samningatækni sem hefur það að markmiði að koma á samningum sem báðir samningsaðilar vilja efna. Í kjölfarið sitja nemendur námskeið í samningagerð þar sem áhersla er lögð á ritun vandaðra samninga með skýrum samningsákvæðum. Þá felur námið í sér hagnýta þjálfun í sáttamiðlun svo að nemendur geti að því loknu leyst ágreiningsmál áður en deilur aðila verða tímafrekar og kostnaðarsamar. Námið er kennt í fjarnámi og hentar vel meðfram vinnu.
Örnámið hentar fyrir þau sem starfa í íslensku atvinnulífi sem stjórnendur og millistjórnendur hjá fyrirtækjum og opinberum stofnunum eða sem sjálfstæðir atvinnurekendur.
Námið er einnig gagnlegt fyrir þau sem starfa sem löggiltir fasteignasalar eða löggiltir bifreiðasalar.
Fjöldi ECTS eininga og dreifing vinnuálags
Námið er samtals 12 ECTS einingar og samanstendur af fjórum námskeiðum sem eru 3 ECTS einingar hvert. Hvert námskeið er kennt í sjö vikna lotu í fjarnámi. Fjórar lotur sem dreifast á haust- og vorönn.
- Inngangur að samningarétti – Lota 1
- Hagnýt samningatækni – Lota 2
- Samningagerð – Lota 1
- Inngangur að sáttamiðlun – Lota 2
Fagstjóri námsins er Elín H. Jónsdóttir
Verð
Verð fyrir þátttöku er 490.000 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Umsóknir og aðgangsviðmið
Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu (bakkalár), sem að jafnaði hefur verið lokið með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) eða jafngildi þess.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi með umsókn sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun hja bifrost.is