Lestur og greining ársreikninga Fjarnám
Endurmenntun

Lestur og greining ársreikninga

Námskeiðið veitir ekki einingar

Umsóknarfrestur til 6. nóvember
29.990 kr
11. og 13. nóvember
11. og 13. nóvember
Jón Snorri Snorrason

Lestur og greining ársreikninga

Námskeiðið snýst um að útskýra í einföldu og stuttu máli hvað ársreikningar fyrirtækja eru, hvernig þeir eru uppbyggðir og hvaða upplýsingar þeir geyma. Gerð er greining á rekstri og fjárhag fyrirtækja með fjárhagskennitölum. Tekin verða raundæmi úr ársreikningum íslenskra félaga og hvað þessir reikningar segja okkur og ekki síst hvað þeir segja okkur ekki.
Í námskeiðinu verða grunnhugtök og forsendur ársreikninga kynnt. Uppbygging á ársreikningi er skoðuð og hvernig hún myndar eina heild, þ.e. efnahagsreikningur, rekstrarreikningur, sjóðsstreymi, áritun endurskoðenda og skýrsla stjórnar.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti:

  • Lesið ársreikning og að gera sér grein fyrir stöðu félags og árangri í rekstri
  • Borið saman félög og greint hvenær félög eru ekki sambærileg.
  • Geti gert sjálfstætt mat á ársreikningum, kunni að lesa þá og skýra innihald þeirra. 
  • Geti reiknað helstu kennitölur og fjárhagsupplýsingar.
  • Geti túlkað og lagt mat á innihald ársreiknings hvað varðar rekstur og efnahag.

Fyrir hverja, þátttökugjald, fyrirkomulag og umsóknir

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á ársreikningum en teja sig skorta fjármálabakgrunn en vilja læra að lesa og skilja ársreikninga.  Einnig fyrir þá þá sem vilja geta greint helstu stærðir í ársreikningum og fengið hagnýta yfirferð til að vera virkari þátttakendur í umræðum um uppgjör skipulagsheilda t.d. á aðalfundum þ.m.t. þeir sem eru nú þegar í rekstri en vilja taka virkari þátt í fjármálahluta rekstrarins.

Þátttökugjald er 29.900 kr

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi og fer fram á Teams. Kennt er í tvö skipti, dagana 11. og 13. nóvember frá kl. 17:00-19:00.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Jón Snorri Snorrason, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 6. nóvember 2025.

 


SÆKJA UM

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.