Verkfærakista gæðastjórans
Í námskeiðinu kynnast nemendur ýmsum hagnýtum aðferðum sem nýtast í gæðastjórnun og stjórnun almennt. Unnin verða verkefni þar sem þátttakendur velja sér verkfæri til að kynna sér nánar og æfa sig í að beita þeim. Einnig verður sagt frá nýjustu þróun í staðlamálum og vottunum. Kynntir verða nýir vinsælir staðlar, t.d. í umhverfismálum og ferðaþjónustu, og þátttakendur kynna sér staðla og vottanir sem tengjast þeirra atvinnugrein.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta nýtt fjölbreytt verkfæri til að rýna og meta fyrirtæki með tilliti til gæðastjórnunar, vinna í teymi við ýmissa aðila við ákvarðanatöku gæðamála.
Þátttökugjald er 125.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 3 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu á Vesturlandi. Kennsla hefst 13. október og stendur yfir til 1. desember 2025. Staðlota verður haldin dagana 30. október - 2. nóvember og koma frekari upplýsingar síðar.
Kennari
Kennarar námskeiðisins eru Einar Svansson, prófessor og Sigurður Magnús Harðarson stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 8. október 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.