Menning og stjórnun

Menning og stjórnun

Farið er í frumatriði menningarstjórnunar svo sem hugmyndafræði menningarstofnana og stefnumörkun, menningarlegar og rekstrarlegar forsendur verkefna, markaðssetningu og hugmyndavinnu. Helstu atriði stjórnunarfræða verða rædd og skipulag fyrirtækja sett í samhengi við forsendur þeirra. Þá verður fjallað um rannsóknavinnu í menningarstjórnun og nemendum hjálpað af stað við að undirbúa og leggja drög að M.A. ritgerð.

Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra um menningarstjórnun og humgmyndafræði menningarstofnana.

Þátttökugjald er 75.000 kr. 

Námskeiðið veitir 6 einingar á framhaldsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í 7 vikur og nemendur mæta í eina vinnustofur á því tímabili.  Kennsla hefst 18. ágúst 2025. og er kennt til 27. september 2025. Vinnustofan verður á tímabilinu 11. - 14. september, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september til 4. október.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Njörður Sigurjónsson 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.