Íslenska miðstig B1.1 - Fyrri hluti Námskeið
Endurmenntun

Íslenska miðstig B1.1 - Fyrri hluti

5 einingar á framhaldsskólastigi

Umsóknarfrestur er til 8. október
75.000 kr.
13. október - 1. desember
7 vikna námskeið
Sigríður Kristinsdóttir

Íslenska miðstig B1.1 - Fyrri hluti

Námskeiðið er á stigi B1.1 á evrópska tungumálarammanum. 

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Notast er við vendikennslu sem felur í sér að nemendur fá fyrirlestra, verkefni og æfingar á rafrænu formi og sækja síðan vikulega umræðu- og verkefnatíma með kennurum þar sem þeir fá þjálfun í tali og hlustun á íslensku. Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í samræðum í verkefna- og umræðutímum. Vikulegir tímar verða á miðvikudögum kl. 16:20. Nemendur geta búist við að verja 15-20 klst á viku í vinnu við námið. 

Aðgangsviðmið

Gert er ráð fyrir að þeir sem hefji námskeiðið hafi grunn í íslensku sem samsvarar stigi A2.2. 

Kennari

Kennari námskeiðsins er Sigríður Kristinsdóttir

Verð

Verð fyrir námskeiðið er 75.000 kr. prófagjöld innifalin.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 8. október 2025

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Stjörnumerkta (*) reiti verður að fylla út.