Starfsauglýsing: Þjónustustjóri upplýsingatækni 19. október 2020

Starfsauglýsing: Þjónustustjóri upplýsingatækni

Auglýst er laust starf þjónustustjóra upplýsingatækni við Háskólann á Bifröst. Viðkomandi ber ábyrgð á þróun og rekstri kennslukerfa, á innra neti skólans og samþættingu kerfa sem nýtt eru í kennslu. Starfið felur í sér margþætta þróun upplýsingatækni, þjónustu, samstarf og samskipti við kennara, starfsfólk, stjórnendur og utanaðkomandi rekstraraðila kerfa. Háskólinn á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Samskipti við rekstraraðila kennslukerfa og innri kerfa skólans um notkun og þróun þeirra.
  • Þróun, samþætting og viðhald tæknilegs umhverfis kennslu, innra nets og upplýsingaveita.
  • Dagleg umsýsla og umsjón kennslukerfa og innra nets skólans.
  • Almenn ráðgjöf og stuðningur við kennara vegna tæknilegra mála tengdum kennslukerfum.
  • Umsjón og ábyrgð á viðburðum sem sendir eru út í beinu streymi eða teknir upp.
  • Þátttaka í gerð kennslumyndbanda og leiðbeininga um notkun kerfa fyrir kennara, starfsfólk og nemendur.  
  • Tölfræðileg úrvinnsla upplýsinga úr kerfum og framsetning þeirra fyrir stjórnendur.
  • Önnur tilfallandi störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf (BS) sem nýtist í starfi.
  • Upplýsingatæknibakgrunnur er mikilvægur.
  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er kostur.
  • Kennsluréttindi og/eða kennslureynsla er kostur.
  • Starfsreynsla úr skólastarfi á háskólastigi er kostur.
  • Frumkvæði, drifkraftur og þjónustulipurð.
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni.
  • Greiningarfærni og tölufærni.
  • Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Umsókn: Með umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilsskrá, afrit af útskriftarskírteinum og kynningarbréf þar sem kemur fram m.a. stutt lýsing á hugmyndum umsækjanda um hlutverk og áskoranir þjónustustjóra upplýsingatækni við Háskólann á Bifröst.

Starfsstöð: Bifröst og eftir atvikum og þörfum á starfsstöð í Reykjavík.

Háskólinn á Bifröst vinnur samkvæmt jafnréttisáætlun skólans og hvetur alla óháð kyni til að sækja um.

Nánari upplýsingar:  Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir kennslustjóri (kennslustjori@bifrost.is). Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2020.

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta