Opinber stjórnsýsla IV Upplýsingalög og lög um persónuvernd
Í þessu námskeiði eru gildandi upplýsingalög tekin fyrir og hlutverk þeirra innan opinberrar
stjórnsýslu, sem og í samfélaginu í heild sinni sem nokkurs konar útverðir upplýstrar, opinberrar
umræðu. Fjallað er sérstaklega um lög um persónuvernd og farið verður útí meðferð
persónuupplýsinga innan opinberrar stjórnsýslu, s.s. skráning mála og upplýsinga,
gagnaaðgengi, meðferð trúnaðarupplýsinga og afhendingu þeirra.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér gildandi upplýsingalög meðal annars.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina staðlotu á Vesturlandi. Kennsla hefst 13. október og stendur yfir til 1. desember 2025. Staðlota verður haldin dagana 30. október - 2. nóvember og koma frekari upplýsingar síðar.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Hólmar Örn Finnsson.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 8. október 2025.
Vinsamlegast látið fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.