Markaðsfræði
Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum hlutverk markaðsfræðinnar í rekstri, stjórnun og stefnumótun fyrirtækja og mikilvægi hennar í markaðsfærslu vöru og þjónustu til neytenda. Markaðsumhverfi fyrirtækja er skoðað ásamt þáttum sem notaðir eru við markhópagreiningu og markaðshlutun, auk þess sem farið er yfir grunnhugtök markaðsfræðinnar og þær stýranlegu breytur sem stjórnendur markaðsmála hafa yfir að ráða í daglegu starfi.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið hentar þeim sem vinna að markaðsmálum í fyrirtækjum og stofnunum.
Þátttökugjald er 164.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk þess sem ein vika er til viðbótar fyrir námsmat. Kennsla hefst 16. október 2023 og stendur til 23. nóvember 2023. Námsmat fer fram dagana 27. nóvember – 1. desember.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Ragnar Már Vilhjálmsson
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 2. október 2023.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.