Tryggðarstefna og stjórnun
Markmið námskeiðsins er að kynna stefnumiðaða nálgun á tryggð viðskiptavina og veita nemendum hagnýta færni í að móta og innleiða tryggðarstefnu. Fjallað er um þróun tryggðarstjórnunar í sögulegu samhengi, lykilatriði stefnumótunar og framkvæmdar, ásamt stjórnun vildarkerfa og öðrum aðferðum til að efla viðskiptatryggð.
Kennslan byggir á áratuga rannsóknum og nýjustu þróun á sviði tryggðarstjórnunar. Fjallað er um hvernig fyrirtæki geta nýtt bæði hefðbundnar og nýstárlegar aðferðir, svo sem gagnadrifnar ákvarðanir, tæknilausnir og stafræna snertifleti, til að hámarka tryggð viðskiptavina. Sérstök áhersla er lögð á að móta heildræna tryggðarstefnu sem tekur mið af öllum snertiflötum viðskiptavina og styrkir tengsl þeirra við fyrirtækið.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja læra að móta og innleiða tryggðarstefnu í fyrirtæki sem og að hanna og framkvæma árangursmælingar og túlkað gögn til að bæta árangur tryggðarstefnu.
Þátttökugjald er 75.000 kr
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Vesturlandi. Kennsla hefst 18. ágúst 2025 og stendur til 4.október 2025. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst á tímabilinu 4. - 7. september 2025 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október.
Kennari
Kennari námskeiðisins er Edda Blumenstein lektor við Háskólann á Bifröst.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.