Frumkvöðlastarf á Íslandi 2: Að koma rekstri á fót
Með því að byggja á Frumkvöðlastarfi á Íslandi 1: Frá hugmynd til athafna einblínir þessi lota á hagnýt atriði frumkvöðlastarfs, svo sem viðskiptaáætlun, stuðningsumhverfi Íslands fyrir sprotafyrirtæki og aðferðir til að fara frá hugmynd að sjálfbærum rekstri.
Með því að styðjast við reynslusögur, gagnvirkar vinnustofur og gestainnlegg frá sérfræðingum fá nemendur verðmæta innsýn inn í umhverfi íslensks frumkvöðlastarfs og læra að takast á við áskoranir þess að setja af stað og stækka fyrirtæki. Námskeiðið fjallar einnig um árangursríkar aðferðir við kynningu og samskipti, sem styður nemendurna í að miðla hugmynd sinni af öryggi.
yrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja geta hagnýtt þekkingu sína á frumkvöðlastarfi innan vinnumarkaðarins og hafa öryggi til að taka þátt í nýsköpunarumhverfi Íslands. Geta stækkað og viðhaldið rekstri sínum og meta eigin viðskiptaáætkun á gagnrýninn hátt og leggja mat á fýsileika hennar.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Vesturlandi. Kennsla hefst 18. ágúst 2025 og stendur til 4.október 2025. Ein fjögurra stunda vinnustofa verða haldin á Bifröst á tímabilinu 4. - 7. september 2025 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október.
Kennari
Kennari námskeiðisins er Fida Abu Libdeh
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.