Miðlun: Áhrif félags og fjölmiðla
6 ECTS einingar á grunnnámsstigi
75.000 kr.
7 vikna námskeið
Guðbjörg Hildur Kolbeins
Miðlun: Áhrif félags og fjölmiðla
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist staðgóða þekkingu á helstu kenningum um áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla, t.d. á hugtökum eins og innrömmun og dagskrárvaldi, og að þeir skilji af hverju framsetning frétta skiptir máli, hvaða áhrif falsfréttir geti haft og hvernig samfélagsmiðlar séu hinir nýju hliðverðir. Sérstök áhersla er lögð á samspil fjölmiðla, samskiptamiðla og stjórnmála í kosningum, og fjallað er um nýjustu þekkingu á því sviði. Farið verður jafnframt ítarlega yfir áhrif auglýsinga, t.d. hvaða þættir auki eða dragi úr áhrifum þeirra, en ekki síst er rætt í námskeiðinu um óbeinar auglýsingar og áhrif svokallaðra
áhrifavalda á samskiptamiðlum.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast aukinn skilning á áhrifum fjölmiðla og samfélagsmiðla
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærileg menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu. Kennsla hefst 18. ágúst og stendur til 27.september 2025. Um fjögurra stunda vinnustofa verður á tímabilinu 4. - 7. september, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september til 4. október.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Guðbjörg Hildur Kolbeins, stundakennari við Háskólann á Bifröst
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is