Menning og stjórnun
6 ECTS einingar á framhaldsstigi
75.000 kr
7 vikna námskeið
Njörður Sigurjónsson
Menning og stjórnun
Farið er í frumatriði menningarstjórnunar svo sem hugmyndafræði menningarstofnana og stefnumörkun, menningarlegar og rekstrarlegar forsendur verkefna, markaðssetningu og hugmyndavinnu. Helstu atriði stjórnunarfræða verða rædd og skipulag fyrirtækja sett í samhengi við forsendur þeirra. Þá verður fjallað um rannsóknavinnu í menningarstjórnun og nemendum hjálpað af stað við að undirbúa og leggja drög að M.A. ritgerð.
Fyrir hverja, þátttökugjald og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra um menningarstjórnun og humgmyndafræði menningarstofnana.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Námskeiðið veitir 6 einingar á framhaldsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í 7 vikur og nemendur mæta í eina vinnustofur á því tímabili. Kennsla hefst 18. ágúst 2025. og er kennt til 27. september 2025. Vinnustofan verður á tímabilinu 11. - 14. september, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 28. september til 4. október.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Njörður Sigurjónsson
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is