Útgáfuhóf vegna útgáfu nýrrar stjórnmálafræðilegrar skáldsögu 9. nóvember 2017

Útgáfuhóf vegna útgáfu nýrrar stjórnmálafræðilegrar skáldsögu

Vegna útgáfu nýrrar stjórnmálafræðilegrar skáldsögu dr. Eiríks Bergmanns, prófessors við Háskólann á Bifröst, er blásið til útgáfufagnaðar á morgun föstudag klukkan 17 síðdegis í Eymundsson. Öllum Bifrestingum er boðið. Í Samsærinu er fylgst er með því hvernig þrengist um hið frjálslynda þjóðfélag í víxlverkun átaka og ógnar; á milli ratíkalíseraðra íslamskra hryðjuverkaafla og þjóðernispopúlískra stjórnmálahreyfinga.

Fræðilegur þráður sögunnar er dreginn úr bók Eiríks, Nordic Nationalism and Right-Wing Populist Politics, sem kom út hjá alþjóðlega fræðibókarisanum Palgrave Macmillan fyrir nálega ári.

Í Samsærinu eru niðurstöður stjórnmálafræðilegrar rannsóknar með öðrum orðum settar inn form pólitísks reyfara. Skráning fer fram á https://www.facebook.com/events/124707731536761/

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta