Að loknu námi

Háskólinn á Bifröst hefur starfrækt Háskólagátt frá árinu 2013 en námið byggir á Frumgreinadeild sem starfrækt hafði verið á undan í 15 ár. Nám í Háskólagátt er án hefðbundinna skólagjalda en innheimt er annargjald hverja önn. Námið hefur reynst haldgóður undirbúningur fyrir nemendur sem stefna á háskólanám en hafa gert hlé á námi og sótt reynslu í atvinnulífið og/eða vantar framhaldsskólaeiningar til að komast í háskóla. Nám í Háskólagátt er í fullu samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla.

Frumgreinapróf úr Háskólagátt er hins vegar ekki frekar en önnur framhaldsskólapróf trygging fyrir því að komast í hvaða háskólanám hvar sem er.

Um 90% þeirra sem útskrifast úr Háskólagátt hafa stundað háskólanám að útskrift lokinni, samkvæmt könnun sem skólinn gerði nýverið. Um helmingur nemenda við Háskólann á Bifröst en um 40% við aðra háskóla, hérlendis og erlendis. Námið í Háskólagátt er miðað að því námi sem er stundað við Háskólann á Bifröst, viðskiptafræði, lögfræði og félagsvísindi.

Við erum stolt af árangri Háskólagáttarnemenda í háskólanámi og er það eini marktæki mælikvarðinn sem við höfum á gildi námsins. Háskólagáttin hefur á liðnum árum skapað hundruðum einstaklinga tækifæri til háskólanáms, tækfæri sem þetta kraftmikla fólk hefði ella ekki notið. Árangur þess er skýrt merki um gildi námsins og gæði.

Háskólinn á Bifröst hefur ávallt gert umsækjendum um Háskólagátt grein fyrir því að námið tryggi ekki háskólavist. Í viðtölum eru allir umsækjendur í Háskólagátt upplýstir um að til að komast í háskóla á Íslandi þurfi stúdentspróf, en þeir sem útskrifist með aðfararnám frumgreinadeilda sæki um á undanþágu sem háskólar geta nýtt sér með leyfi mennta- og menningamálaráðuneytis. Allir sem útskrifast úr Háskólagátt sækja um á undanþágu í háskóla á Íslandi. Auk þess er er tekið fram á heimasíðu skólans, bifrost.is, að allir háskólar landsins nýti sér þessa heimild mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta