Diplóma í stjórnvísindum

Stjórnvísindi er áhugavert nám sem undirbýr nemendur fyrir störf eða frekara nám á breiðum grunni, jafnt hér á landi sem erlendis. Í stjórnvísindum fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og félagsvísinda sem jafnan eru kenndar hver í sínu lagi. Með því að nýta aðferðir og innsýn þessara þriggja greina saman, verður til óvenjulegt og innihaldsríkt nám sem gerir nemendum mögulegt að skilja hvernig ólík sjónarhorn fræðanna geta unnið saman.

Diplóma í stjórnvísindum er 60 ECTS eininga grunndiplóma.  Sem grunnnám á háskólastigi er um góðan grunn að ræða fyrir hvaða nám sem er í félagsvísindum, en einnig er hægt að halda náminu áfram við Háskólann á Bifröst og ljúka BA-gráðu í stjórnvísindum.

Bifröst er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í stjórnvísindum. Námsbrautin er sniðin að breskri fyrirmynd og nýtur hún virðingar og vinsælda víða um heim. Námið miðar að því að veita víðtæka og fjölþætta þekkingu á gangverki nútímasamfélags auk þess að efla gagnrýna hugsun og búa einstaklinga undir krefjandi störf á vinnumarkaði og virka þátttöku í þjóðfélagsumræðu.

  • Lærðu heima

    Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi við HB á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. Nánar um námið við Háskólann á Bifröst

  • Fyrirkomulag kennslunnar

    Við Háskólann á Bifröst er áhersla lögð á persónulega þjónustu til nemenda. Ánægjukannanir sýna að mikill meirihluti nemenda er afar ánægður með námið og samskipti við kennara og starfsfólk.

    Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær lotur. Verkefnavinna er stór þáttur í námsmati háskólans og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir lotur skólaársins.

    Sjö vikur eru í hvorri lotu og ein staðlota, þar sem nemendur hitta kennara og samnemendur og taka þátt í umræðum og hópverkefnum. Önnur sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst eru misserisverkefni eða missó, eins og verkefnin eru gjarnan nefnd. Missó tekur mið af á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing) og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Nánar um námið á Bifröst

  • Framvinda og námslok

    Grunnnám við Háskólann á Bifröst er 180 ECTS fjarnám og geta nemendur að verulegu leyti ráðið námshraða sínum.

    Jafnframt gefst kostur á því að ljúka flestu grunnnámi á tveimur og hálfu ári. Sumarönn er kennd við Háskólann á Bifröst og nemdur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Námskeiðum má þannig að mestu leyti ljúka á fyrstu tveimur námsárunum. Á þriðja ári gera nemendur svo lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem kunna að vera eftir vegna starfsþjálfunar eða valnámskeiða. 

  • Inntökuskilyrði

    Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

    Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.

  • Umsóknarfrestur

    Opið er fyrir umsóknir um nám við Háskólann á Bifröst vegna haustannar 2024 til og með 5. júní nk. 

    Sækja um