Laugardaginn 1. apríl standa Háskólinn á Bifröst og Listasafn Reykjavíkur fyrir málstofu um þróun og horfur á íslenskum myndlistarmarkaði.

Tilefnið er ærið en markmiðið er að ræða spurningar sem vaknað hafa á síðustu misserum, meðal annars um fjölgun gallería og söluaðila myndlistar og hvort heimsfaraldurinn hafi mögulega haft góð áhrif á listviðskipti.  

Vísbendingar eru um að markaður með myndlist hafi eflst á Íslandi á síðustu misserum. Met hefur nýlega verið slegið á íslenskum uppoðsmarkaði og hermt er að eftirspurn hafi aukist í Covit-19 faraldrinum. Þá kemur fram í drögum að nýrri myndlistarstefnu að stefnt sé að 2-4% vexti í heildarveltu greinarinnar á ári fram til ársins 2030. Erfitt hefur þó reynst hingað til að kortleggja umfang íslenska myndlistarmarkaðarins því að skortur á rannsóknum og opinberum hagtölum kemur í veg fyrir að hægt sé að segja með vissu hver staðan er. Er aukin sýningarstarfsemi og fjölgun gallería til marks um sterkari markað með myndlist á Íslandi? Hvernig er hægt að auka umsvif á íslenska myndlistarmarkaðnum og hvað þarf til svo að markaður með myndlist geti talist öflugur? 

Í málstofunni mun Kári Finnsson, listfræðingur og hagfræðingur, fjalla um stöðu listmarkaðarins og þróun síðastliðin ár í alþjóðlegu samhengi og ber saman við þróun markaðarins hér á landi. Á eftir erindi Kára ræða hann og Ingibjörg Jónsdóttir, eigandi gallerísins BERG Contemporary, um stöðu myndlistar og myndlistarmarkaðarins. 

Málstofan fer fram á Kjarvalsstöðum, laugardaginn 1. apríl, kl. 11:00 til 12:30, öllum opin og í beinu streymi. Fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson prófessor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.  

Málstofur um menningarstjórnun eru samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Háskólans á Bifröst.  Nálgast má nánari upplýsingar um málstofuna á vef Háskólans á Bifröst á bifrost.is.

Málstofan er öllum opin og er haldin á Kjarvalsstöðum en þeir eiga einmitt 50 ára afmæli um þessar mundir. Þá verður beint streymi frá málstofunni sem finna má tengil á hér á síðunni.