Skólagjöld fyrir sumarönn 2024

Skólaárið í grunn- og meistaranámi, háskólagátt og endurmenntun hefst um mánaðamótin júlí/ágúst. Skólagjöld eru jafnan lánshæf hjá Menntasjóði námsmanna

Háskólagátt

Verð á einingu í háskólagátt kr. 3.750 og er verðið á 5 eininga áfangi því kr. 18.750. Við samþykkt umsóknar greiðir nemandi hluta skráningargjalda, eða kr. 37.750 í staðfestingargjald, sem jafngildir verði fyrir 10 einingar. Þegar frestur til að skrá sig úr námskeiðum hefur runnið út fær nemandi sendan greiðsluseðil fyrir þeim einingum sem eftir standa. 

Grunnnám

Skólagjöld fyrir grunnnám eru innheimt fyrir einingaþrep innan annar. Innritunar- og staðfestingargjald er kr. 127.000 og dregst frá skólagjöldum.

Einingar á önnSkólagjöld
 1 - 8 einingarkr. 164.000
 9 - 16 einingarkr. 215.000.
 17 - 22 einingarkr. 266.000
 23 > einingarkr. 317.000 kr.
Meistaranám

Skólagjöld fyrir meistaranám eru innheimt fyrir einingaþrep innan annar.  Innritunar- og staðfestingargjald er kr. 127.000 og dregst frá skólagjöldum. 

Einingar á önnSkólagjöld
1-8 einingarkr. 219.000
9-16 einingarkr. 339.000
17-22 einingarkr. 449.000
>23 einingarkr. 499.000

Endurtektarpróf

Gjald fyrir hvert endurtektarpróf er kr. 10.000. Greiða þarf gjaldið minnst 2 virkum dögum fyrir áætlaðan prófadag.

Ákvörðun um breytingu skólagjalda á milli ára er tekin af stjórn háskólans með hliðsjón af áætluðum breytingum á launakostnaði og verðlagi. Skólagjöld eru ákvörðuð við gerð fjárhagsáætlunar háskólans fyrir komandi skólaár og eru kynnt samhliða. Breytingar taka gildi á komandi haustönn.  

Hafa má samband við innheimtufulltrá á netfanginu innheimta@bifrost.is