Skráning stendur yfir í Mátt kvenna 19. janúar 2018

Skráning stendur yfir í Mátt kvenna

Máttur kvenna er 11 vikna nám fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja. Hefur námið átt miklum vinsældum að fagna og frá árinu 2004 hafa yfir 1000 konur útskrifast úr náminu. Góð aðsókn var í Mátt kvenna á síðustu önn en 30 konur útskrifuðust þann 14. desember síðastliðinn.  

Kennsla í Mætti kvenna fer fram í fjarnámi en að auki eru kennslustundir á vinnulotum þar sem lögð er  áhersla á hópavinnu nemenda. Vinnulotur eru í upphafi og um miðbik námsins sem líkur svo með formlegri útskrift. Næsta námskeið í Mætti kvenna hefst 9. febrúar næstkomandi og er umsóknarfrestur til 31. janúar. Allar helstu upplýsingar um námið má nálgast hér.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta