14. júlí 2015

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir nýr sviðsstjóri félagsvísindasviðs Háskólans á Bifröst

Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, lektor, verður nýr sviðsstjóri félagsvísindasviðs Háskólans á Bifröst.  Hún hefur starfað sem lektor á félagsvísindasviði og viðskiptasviði frá því í desember 2012 og þar áður sem aðjúnkt og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst frá 2010. Sigrún lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Exeter í Englandi (2012), MA-prófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst (2009), kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri  (2003) og BA-prófi í bókmenntum frá Háskóla Íslands (2001).  Sigrún hefur stundað rannsóknir á sviði menningarfélagsfræði og menningarstjórnunar; hún hefur birt fræðigreinar um rannsóknir sínar í alþjóðlegum tímaritum og tekið þátt í fjölmörgum ráðstefnum bæði heima og erlendis.

Dr. Páll Rafnar Þorsteinsson, fráfarandi sviðsstjóri, heldur áfram störfum við Háskólann á Bifröst við kennslu og rannsóknir. 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta