Alls 82 nemendur útskrifaðir á háskólahátíð 18. febrúar 2017

Alls 82 nemendur útskrifaðir á háskólahátíð

Vilhjálmur Egilsson rektor útskrifaði alls 82 nemendur úr öllum deildum skólans, námi í verslunarstjórnun og Háskólagátt, í dag, laugardaginn 18. febrúar, við hátíðlega athöfn.

Í útskriftarræðu sinni til útskriftarnemenda vék Vilhjálmur að því að Bifrestingum gangi almennt mjög vel á vinnumarkaði, enda séu þeir fólk sem leysi vandamál og kunni að vinna með öðrum. Samfélagið nú sem í framtíðinni gengi ekki upp nema fólk ynni vel saman.

Þá ræddi Vilhjálmur um að mikilvægt væri fyrir háskólann að styrkja enn frekar stöðu sína á sviði fjarnáms og því sé nú verið að fara yfir þau tækifæri sem þurfi að grípa með uppfærslu á kerfum og endurnýjun á aðstöðu nemenda og tæknibúnaði í skólanum. Markmiðið sé að verja ótvírætt forystuhlutverk háskólans á þessu sviði.

Vinna íslensku samfélagi mikið gagn

„Háskólinn á Bifröst er ótrúlega gott samfélag sem hefur mótandi áhrif á alla sem verða hluti af því.  Skólinn nýtur þess að hafa nemendur sem vilja ná árangri og taka að sér leiðandi hlutverk í atvinnulífinu og samfélaginu. Skólinn nýtur líka kennaranna og annars starfsfólks sem hefur metnað til að skila góðu verki og skila skólanum sterkum áfram inn í framtíðina. Við stöndum í þakkarskuld við alla nemendur og starfsmenn sem hafa lagt sitt af mörkum í skólanum okkar. Allt þetta fólk er að vinna íslensku samfélagi mikið gagn,“ sagði Vilhjálmur einnig í ræðu sinni.

Verðlaun og  útskriftarræður

Útskriftarverðlaun hlutu í grunnnámi, Svanberg Halldórsson, viðskiptadeild, Edda Bára Árnadóttir, lagadeild og Sigurður Kaiser félagsvísindadeild . Útskriftarverðlaun hlutu í meistaranámi Sigurbjörg R Hjálmarsdóttir,  viðskiptadeild, Þórunn Unnur Birgisdóttir, lagadeild og Friðrik Árnason og Sigríður Valdimarsdóttir,félagsvísindadeild. Að auki fengu eftirfarandi þrír nemendur felld niður skólagjöld á haustönn í tilefni af framúrskarandi námsárangri, Vera Dögg Höskuldsdóttir, viðskiptadeild, Þórarinn Halldór Óðinsson lagadeild og Pétur Steinn Pétursson  félagsvísindadeild.

Ræðumaður fyrir hönd viðskiptadeildar var Svanberg Halldórsson, fyrir hönd lagadeildar Edda Bára Árnadóttir og fyrir hönd félagsvísindadeildar Sif Guðmundsdóttir. Ræðumaður fyrir hönd meistaranema var Helga Margrét Friðriksdóttir, viðskiptadeild.

Karlakórinn Söngbræður sá um söngatriði við útskriftina við undirleik Heimis Klemenzssonar.

Ræðu rektors má finna í heild sinni hér

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta