BS í viðskiptafræði

Ábyrg forysta og stjórnun í atvinnulífi og samfélagi

Grunnnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst er alhliða 180 ECTS eininga viðskiptanám til BS gráðu. Gæðakannanir sýna að nemendur eru afar ánægðir með fyrirkomulag og skipulag námsins og persónulega þjónustu háskólans. 

Sérstaða viðskiptafræðinámsins við Bifröst felst í þeim tækifærum sem sjö mismunandi áherslum veita til sérhæfingar. Nemandi í BS námi getur þannig skráð sig í viðskiptafræði með allt að tveimur kjörsviðum, allt eftir löngun og áhuga. Einnig er hægt að leggja stund á viðskiptafræði til BS gráðu án kjörsviðs. 

Eftirfarandi kjörsvið eru í boði með BS námi í  viðskiptafræðifjármálastjórnun, markaðsfræðisamfélagsmiðlamarkaðssetningsjálfbærnistjórnun, verkefnastjórnun, verslunarstjórnun, viðskiptagreind og þjónustufræði.

Nánari upplýsingar
  • Nám í viðskiptafræði á Bifröst

    Markmiðið með grunnnámi í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst er að gera nemendum kleift að nýta frumkvæði sitt og sjálfstæði til aukinna áhrifa og ábyrgðarstarfa.

    Námið miðar að því að nemendur afli sér þekkingar og færni á sviði viðskipta auk þess að vinna að raunverulegum verkefnum. Fræðilegi hluti Þess felur í sér skilning á fræðilegri greiningu og kenningum og hæfni til að vinna með þær. Þverfagleg nálgun miðar svo að því að efla gagnrýna og skapandi hugsun, atvinnulífi og samfélagi til góða. 

    Nánar um sérstöðu námsins við Háskólann á Bifröst 

  • Lærðu heima

    Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi við HB á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. Nánar um námið við Háskólann á Bifröst

  • Fyrirkomulag kennslunnar

    Við Háskólann á Bifröst er áhersla lögð á persónulega þjónustu til nemenda. Ánægjukannanir sýna að mikill meirihluti nemenda er afar ánægður með námið og samskipti við kennara og starfsfólk.

    Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær lotur. Verkefnavinna er stór þáttur í námsmati háskólans og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir lotur skólaársins.

    Sjö vikur eru í hvorri lotu og ein staðlota, þar sem nemendur hitta kennara og samnemendur og taka þátt í umræðum og hópverkefnum. Önnur sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst eru misserisverkefni eða missó, eins og verkefnin eru gjarnan nefnd. Missó tekur mið af á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing) og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Nánar um námið á Bifröst

  • Framvinda og námslok

    Grunnnám við Háskólann á Bifröst er 180 ECTS fjarnám og geta nemendur að verulegu leyti ráðið námshraða sínum.

    Jafnframt gefst kostur á því að ljúka flestu grunnnámi á tveimur og hálfu ári. Sumarönn er kennd við Háskólann á Bifröst og nemdur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Námskeiðum má þannig að mestu leyti ljúka á fyrstu tveimur námsárunum. Á þriðja ári gera nemendur svo lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem kunna að vera eftir vegna starfsþjálfunar eða valnámskeiða. 

  • Inntökuskilyrði

    Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

    Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.

  • Umsóknarfrestur

    Opið er fyrir umsóknir um nám við Háskólann á Bifröst vegna haustannar 2024 til og með 5. júní nk. 

    Sækja um