Bókasafn Háskólans á Bifröst

Velkomin á vef háskólabókasafnsins á Bifröst. Á safninu er veitt öll hefðbundin þjónusta háskólabókasafns. Hér finnurðu leiðbeiningar um aðgengi að rafrænum bókum og vísindagreinum, ýtarlegar leiðbeiningar um hemildarvinnu og hvernig leitað er að áreiðanlegum og ritrýndum heimildum og margt fleira. Hlutverk bókasafnsins er að styðja við nám, kennslu og rannsóknir með því að veita aðgengi að rafrænu efni á fræðasviðum skólans.  Áhersla hefur verið á rafbókakaup umfram prentað efni frá árinu 2018.

 Tekið er við beiðnum um stafræna leiðsögn í heimildavinnu á bokasafn@bifrost.is.

Þórný Hlynsdóttir, MLIS fostöðukona bókasafns
bókasafns- og upplýsingafræðingur
bokasafn@bifrost.is
Beinn sími: 433 3098