Nemendaskrá
Upplýsingar um námsferil nemenda, skráningar í og úr námskeiðum og einkunnir er að finna í skráningarkerfinu Uglu.
Formlegar útskriftir frá Háskólanum á Bifröst fara fram í júní og febrúar ár hvert, nemendur eru einnig útskrifaðir í september og gefst þá kostur á að mæta í útskriftarathöfn í febrúar. Skráning í útskrift fer fram með rafrænum hætti og er send tilkynning þar að lútandi til nemenda. Prófskírteini eru á íslensku og ensku.
Nemendur geta skráð sig í námskeið á þeim tíma sem háskólaskrifstofa auglýsir opið fyrir skráningu í námskeið. Nemendur skrá sig sjálfir í námskeið í gegnum Uglu. Mikilvægt er að nemendur skrái sig rétt og fyrir auglýstan skráningarfrest.
Nemendum er bent á að senda tölvupóst á verkefnastjóra viðeigandi deildar:
Soffía Dagmar Þorleifsdóttir Verkefnastjóri háskólagáttar – haskolagatt hjá bifrost.is; verkefnastjóri félagsvísindadeildar - felagsvisindadeild hjá bifrost.is; verkefnastjóri lagadeildar - lagadeild hjá bifrost.is | |
Helena Dögg Haraldsdóttir Verkefnastjóri viðskiptadeildar - vidskiptadeild hjá bifrost.is | |
Verkefnastjóri meistaranáms - meistaranam hjá bifrost.is |
Sótt er um staðfestingu á skólavist og áfangavottorð í þjónustugátt skólans.