Vettvangur fyrir ungt athafnafólk og frumkvöðla 5. september 2018

Vettvangur fyrir ungt athafnafólk og frumkvöðla


Icelandic Startups stendur árlega fyrir frumkvöðlakeppninni Gullegginu. Meginmarkmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. Keppnin er frábært tækifæri fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar og markvissar áætlanir sem miða að stofnun fyrirtækja.

Vert er að benda á að þar sem Háskólinn á Bifröst er einn styrktaraðila keppninnar felur það m.a. í sér að núverandi nemendum Háskólans á Bifröst, og þeim nemendum skólans sem útskrifast hafa síðustu 5 ár, býðst að sitja vinnusmiðjur Gulleggsins sér að kostnaðarlausu. 

Nemendur eru hvattir til að mæta á kynningu á Gullegginu 2018 sem haldin verður miðvikudaginn 5. september kl 16 í húsnæði Háskólans á Bifröst á Suðurlandsbraut. Verkefnastjórnar Gulleggsins munu kynna keppnina og fyrrum nemandi við Háskólann á Bifröst mun segja frá sinni reynslu af þátttöku í Gullegginu. Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta