Nýjar pælingar og verkefni í þjónandi forystu 29. janúar 2019

Nýjar pælingar og verkefni í þjónandi forystu

Þann tólfta febrúar næstkomandi, frá 17:30 til 19:30, verður haldinn umræðu- og kynningarfundur um nýjustu pælingar og komandi verkefni í þjónandi forystu á Íslandi. Í byrjun fundar verður öllum gestum boðið upp á súpu og kaffi verður á boðstólum á meðan fundi stendur. Fundurinn er haldinn af Háskólanum á Bifröst og Þekkingarsetri um þjónandi forystu í sameiningu. Á fundinum munu stjórnendur og kennarar við skólann kynna nýja námslínu til MS gráðu í þjónandi forystu. Þá mun heimspekingurinn Dr. Robert Jack stjórna umræðum þar sem hann varpar fram gagnrýnum spurningum til þeirra sem aðhyllast þjónandi forystu.  Í lokin verður aðalfundur þekkingarsetursins þar sem fara fram almenn aðalfundarstörf.

Þjónandi forysta gegnir lykilhlutverki í stefnu Háskólans á Bifröst og býður skólinn öllum sínum nemendum upp á þjálfun í þjónandi forystu, hvort sem það er í grunn- eða meistaranámi. 

Fundurinn verður haldinn í Reykjavík, í húsakynnum skólans, Suðurlandsbraut 22 á annari hæð. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á þjónandi forystu. Dagskrá og nánari upplýsingar má finna hér.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta