Málþing um innleiðingu nýrrar persónuverndar hjá hinu opinbera 11. mars 2019

Málþing um innleiðingu nýrrar persónuverndar hjá hinu opinbera

Föstudaginn 15.mars 2019 standa Háskólinn á Bifröst og Fræðslusetrið Starfsmennt sameiginlega að málþingi um nýja persónuverndarlöggjöf sem tók gildi í maí síðastliðnum. Málþingið er innlegg í opinbera umræðu um löggjöfina út frá sjónarhorni stjórnsýslunnar og siðfræðinnar. 

Nauðsynlegt er að skrá sig í málstofuna, skráning fer fram hér.

Málþingið er einnig hluti af nýju diplómanámi á grunnstigi háskóla sem Háskólinn á Bifröst og Starfsmennt settu á fót haustið 2018. Námið miðar að því að veita núverandi og tilvonandi starfsmönnum hins opinbera, bæði hjá ríki og sveit, hagnýta þjálfun og fræðilega undirstöðu sem nýtast í starfi. Sett hefur verið saman heildstæð námsleið til BA prófs í opinberri stjórnsýslu og geta áhugasamir kynnt sér betur báðar námsleiðir, þ.e. diplómanámið og BA námið, á málþinginu.

Dagskrá:
12:45 Húsið opnar - kaffi
13:00 Setning málþings 
13:10 Innleiðing breyttrar löggjafar – reynslusögur frá sveitarfélagi og ríkisstofnun
Telma Halldórsdóttir, persónuverndarfulltrúi Garðabæjar
Hólmar Örn Finnsson, persónuverndarfulltrúi hjá embætti landlæknis
14:00 Kynning á námsleið í opinberri stjórnsýslu til diplóma og BA gráðu 
Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir, dósent við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Bifröst
14:15 Kaffihlé
14:30 Persónuverndarlögin með augum siðfræðinnar
Elsa Haraldsdóttir, doktorsnemi í heimspeki og stundakennari við Háskólann á Bifröst
15:30 Pallborðsumræður og málþingsslit

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta