Á sumarönn 2020 er úrsagnarfrestur úr námskeiðum til 30. apríl. Ef nemandi skráir sig úr námskeiði eftir þann tíma hefur hann fyrirgert rétt sínum til lækkunar á skólagjöldum. Ef nemandi eykur við sig einingar, þannig að hann hækki um þrep, eftir að nám er hafið er gefinn út aukareikningur ef einingafjöldi fer á milli þrepa. Eindagi á aukareikningi skal vera 10 dögum eftir útgáfu reiknings.
Í Háskólagátt eru engin skólagjöld en innritunargjöld fyrir önnina er 110.000 kr.
Skólagjöld eru innheimt fyrir einingaþrep innan annar. Sömu skólagjöld eru í fjarnámi og staðnámi.
Innritunar- og staðfestingargjald er 110.000 kr. og dregst frá skólagjöldum.
Einingar á önn |
Skólagjöld |
1 - 8 einingar |
137.000 kr. |
9 - 16 einingar |
169.000 kr. |
17 - 22 einingar |
205.000 kr. |
23 > einingar |
273.000 kr. |
Skólagjöld í meistaranámi eru innheimt fyrir hverja skráða einingu.
Skólagjöld í félagsvísinda- og lagadeild og viðskiptadeild ,eru 21.667 kr. á einingu.
Innritunar- og staðfestingargjald er 110.000 kr. og dregst frá skólagjöldum.
Nemendum er bent á að senda tölvupóst á nemendaskra@bifrost.is ef þeir vilja skrá sig í eða úr námskeiðum utan skráningartíma.