Líðan og heilsa

Til þess að hámarka árangur okkar og frammistöðu, hvort heldur sem er í námi, starfi eða einkalífi þurfum við að vera í góðu formi bæði líkamlega og andlega. Rannsóknir sýna að ef andleg heilsa er ekki góð getur það komið fram í líkamlegum einkennum og öfugt. Öllum sem er annt um hamingju sína og velferð þurfa því að vera vakandi fyrir eigin líðan og heilsu.

Náms- og starfsráðgjafi og sálfræðingur skólans aðstoða nemendur að finna leiðir þegar upp koma áskoranir sem geta haft áhrif á námsframvindu, s.s. veikindi, slys, áföll, breytingar á fjölskylduhögum, kvíðaröskun og þunglyndi. 


Fimm leiðir að vellíðan
Allir vilja upplifa vellíðan í eigin lífi. Hér fyrir neðan má finna fimm einföld ráð sem rannsóknir sýna að skipta mestu máli fyrir hamingju og lífsánægju:

  • Myndaðu tengsl 

    Myndaðu tengsl við fólkið í kringum þig, fjölskyldu þína, vini, samstarfsfólk og nágranna. Ræktaðu tengslin heima hjá þér, í vinnunni, í skólanum og í nánasta umhverfi þínu. Líttu á þessi tengsl sem hornsteina lífs þíns og gefðu þér tíma til að hlúa að þeim. Að byggja upp þessi tengsl styrkir þig og auðgar líf þitt á hverjum degi.

    Leiðir til að efla tengslin eru fjölmargar og í raun bara hugmyndaflugið sem heftir fólk í því. Tilvalið er að gera eitthvað saman og skapa með því góðar minningar. Það eflir líka tengslin að hjálpast að við þau verkefni sem fyrir liggja.

  • Vertu virk/ur

    Farðu út að ganga eða í sund. Njóttu útivistar. Hjólaðu. Farðu í leiki. Ræktaðu garðinn. Dansaðu. Hreyfing færir þér vellíðan. Það er mikilvægasta er að finna hreyfinu sem þú hefur gaman af og hentar líkamlegu ástandi þínu og getu.

    Það eykur líkurnar á að það takist ef þú færð vin eða fjölskyldumeðlim til að vera með þér í hreyfingunni. Flestum finnst bæði skemmtilegra og auðveldara að hreyfa sig með öðrum. Það eflir líka tengslin og þannig má segja að tvær flugur séu slegnar í sama högginu.

  • Taktu eftir

    Haltu í forvitnina. Taktu eftir hinu óvenjulega. Veittu árstíðabreytingum athygli. Njóttu augnabliksins, hvort sem þú ert úti að ganga, að borða hádegismat eða tala við vini þína.

    Vertu vakandi fyrir veröldinni í kringum þig og hvernig þér líður. Að leiða hugann að því sem þú upplifir hjálpar þér að meta það sem skiptir þig máli.

  • Haltu áfram að læra

    Prófaðu eitthvað nýtt. Rifjaðu upp gamalt áhugamál. Skráðu þig á námskeið. Taktu að þér ný verkefni. Lærðu að spila á hljóðfæri eða elda uppáhaldsmatinn þinn.

    Settu þér markmið sem þú munt hafa gaman af að ná. Það er skemmtilegt að læra nýja hluti og eykur sjálfstraustið.

  • Gefðu af þér

    Gerðu eitthvað fallegt fyrir vil þinn eða ókunnuga manneskju. Sýndu þakklæti. Brostu. Gefðu af tíma þínum. Taktu þátt í félags- eða sjálfboðastarfi.

    Fjölmörg góðgerðafélög eru rekin af sjálfboðaliðum og innan íþróttafélaganna er alltaf þörf fyrir vel meinandi sjálfboðaliða. Hikaðu ekki við að taka að þér verkefni fyrir félagsskap sem þú tengist eða hefur áhuga á.

    Horfðu út á við og líka inn á við. Að líta á sig og hamingju sína sem hluta af stærra samhengi getur verið einstaklega gefandi og eflir tengslin við fólkið í kringum þig.

heilsuvera.is

Hvað er góð geðheilsa?

Til eru margar skilgreiningar á góðri geðheilsu en flestar snúa þær að því að fólk sé sátt við sjálft sig og umhverfi sitt, upplifi jafnvægi, öryggi og ánægju af lífi og starfi, búi yfir færni til að takast á við áskoranir lífsins og geti aðlagast breytilegum aðstæðum.

Góð geðheilsa þýðir að okkur líður yfirleitt vel, höfum jákvætt viðhorf til okkar sjálfra og erum fær um að mynda innihaldsrík tengsl við aðra. Við þekkjum eigin styrk- og veikleika og getum nýtt þá til að ná fram því besta í okkur sjálfum. Við þekkjum og viðurkennum eigin tilfinningar, erum fær um að setja okkur í spor annarra og sýna samkennd. Við mætum erfiðleikum af þrautseigju og gefumst ekki upp þótt á móti blási. Við erum fær um að njóta lífsins og finna gleði í því sem lífið hefur upp á að bjóða.

Að vera við góða geðheilsu þýðir þó ekki að líða aldrei illa eða vera laus við öll vandamál. Lífið er ekki eilífur dans á rósum og það er eðlilegt að eiga stundum slæma daga. Það tilheyrir því að vera manneskja. Þegar geðheilsan er góð eigum við þó fleiri góða daga en slæma, erum fær um að herða upp hugann eftir tímabil efasemda, getum tekist á við erfiðleika á uppbyggilegan máta og upplifum ánægju af lífinu þrátt fyrir að vandamál séu til staðar

heilsuvera.is


Heilsa og líðan
Jafnvægi í lífi og starfi
Áföll og ofbeldi

Mín líðan

Er brjálað að gera?

Ofbeldi og afleiðingar ofbeldis

Fellum grímuna

Vellíðan í lífi og starfi

Hvert er hægt að leita?

Karlar og tilfinningar

Kulnun

Meðferðarúrræði

Hjálparsíminn 1717

Þess vegna sofum við

Áföll, áfallastreita og áfallahjálp

Það er alltaf von - vantar þig hjálp? 

Sjálfshjálp

Sorgarmiðstöð

Vellíðan, samskipti og streita

Þrautseigja  -  Bjargráð  -  Krefjandi tímabil

Núvitund og slökun

How to make stress your friend


Geðhjálp

How to be Happy (Even If You've Forgotten What it Feels Like)